Sem stjórnandi átt þú að vera með yfirumsjón, en með hverju? Síbreytilegar stefnur vinnustaðar, markaðir sem sveiflast, óskýr forgangsatriði yfirmanns þíns eða jafnvel beinn undirmaður sem kann eða kann ekki að vera ánægður með hlutverk sitt til langs tíma; óskýrleiki er alls staðar fyrir hendi.
Hér er erfiði sannleikurinn fyrir stjórnendur: Þú mun aldrei fá fram fullkominn skýrleika og stjórn varðandi vinnu þína. En þú getur lært að stjórna kvíðanum, pirringnum og fátinu sem koma jafnan upp í óvissum aðstæðum og öðlast meiri trú á getu þinni til að aðhafast þrátt fyrir að hafa takmarkaðar upplýsingar. Eftirfarandi aðferðir geta hér hjálpað til.
1. Settu þig í fyrsta sæti.
Þegar þig skortir svefn, hefur fengið þér of mikið koffín eða hreyft þig of lítið, ertu mun ólíklegri til að geta einbeitt þér, stjórnað tilfinningum þínum og tekið góðar ákvarðanir en allt þetta er bráðnauðsynlegt til að geta komist í gegnum óvissar aðstæður. Þrátt fyrir þetta fórna stjórnendur alltof oft eigin velferð í hetjulegri viðleitni til að fækka atriðum á tékklistanum: þeir sleppa morgunæfingu til að svara símtali frá viðskiptavini, borða eitthvað óhollt seint um daginn á fundi eða klára að svara tölvupóstum rétt áður en farið er að sofa.
Eins og sagt er þá þarf maður fyrst að setja á sjálfa(n) sig súrefnisgrímuna áður en maður hjálpar öðrum. Farðu því yfir þínar persónulegu venjur varðandi heilbrigði – sérstaklega í tengslum við næringu, hreyfingu og svefn – og gerðu áætlun um að taka framförum. Tímasettu aðgerðir til eflingar eigin heilsu (t.d. að fara í líkamsræktarstöð, fara út að ganga um eftirmiðdaginn, borða hádegisverð á stað sem býður upp á holla rétti) í kringum skyldur þínar í vinnunni. Og þegar það á við geturðu fengið félaga til að taka þátt í sumum hlutum áætlunarinnar; rannsóknir benda til þess að fólki gengur betur að hefja og viðhalda nýrri hegðun þegar það er gert með annarri manneskju sem heldur því við efnið.
2. Taktu eftir og véfengdu neikvæðar hugsanir um óvissu um leið og þær koma upp í hugann.
„Við munum aldrei lifa af sameininguna — allt besta fólkið mitt mun fara.“
„Við verðum að bæta rekstrartölurnar okkar — og höfum ekki hugmynd um hvernig fara á að því!“
„Hvað ef nýja stefnan okkar eykur í reynd ekki tekjur?“
„Hvað ef efnahagslega niðursveiflan gerir út af við okkur?“
Þeim mun minni upplýsingum sem hugur þinn hefur yfir að ráða, þeim mun líklegri er hann til að fylla í eyðurnar með hvað ef þetta eða hitt og verstu mögulegu aðstæðum. Og að láta mögulegar ófarir heltaka sig fer af stað eins og snjóbolti og getur skapað neikvæða þróun sem gerir þig kvíðinn/kvíðna og ófæra(n) um aðgerðir.
Í stað þess að segja þér að „stoppa bara“ – sem á það til að láta manneskju hugsa meira um eitthvað, fremur en minna – ætti fyrsta skrefið að vera að taka einungis eftir svona hugsunum. Byrjaðu á að gera lista yfir allt sem hvílir á huga þínum. Síðan, í stað þess að gefa huganum lausan tauminn, skaltu næst þegar áhyggjurnar koma upp reyna að sjá þær í augnablikinu og véfengja síðan hugsanir þínar með því að spyrja „Væri þetta nokkuð heimsendir?“ Mun sameiningin raunverulega gera út af við ykkur? Muntu raunverulega aldrei finna leið til að bæta rekstrartölurnar ykkar?
Með tímanum ætti slík viðurkenning á neikvæðni af völdum óvissu að hjálpa þér að róa hug þinn þannig að þú getir haldið ótrauð(ur) áfram.
3. Reyndu að auka skýrleika með því að leita eftir meiri upplýsingum, rissa upp mynd eða greina aðstæður þínar með öðrum hætti.
Þó að þú hafir ekki allar upplýsingar sem þú vildir hafa, hefurðu þó einhverjar. Gerðu lista yfir það sem þú þó veist og bættu síðan við því sem þú veist ekki en finnst vera mikilvægt. Það eru margar leiðir sem þú getur notað til að leita eftir því sem vantar. Að teknu tilliti til aðstæðna þinna gætirðu gert eftirfarandi:
-
Spyrðu aðra sem eru líklegir til að hafa innsýn í málin.Ef þú ert t.d. óviss um hvernig eigi að forgangsraða verkefnum eða þú skilur ekki hugsunina á bakvið nýlega stefnubreytingu á vinnustaðnum, geturðu byrjað á að leita eftir upplýsingum frá yfirmanni þínum. Þarftu að varpa betra ljósi á viðskiptavini þína? Jafningjastjórnandi í markaðsdeildinni kann að geta aðstoðað þig. Í sumum tilvikum mun svarið vera „Ég veit það ekki“ (það er nú einu sinni þannig að þú ert ekki eina manneskjan sem stendur frammi fyrir óvissu). En jafnvel að vita að eitthvað er óþekkt getur veitt manni meiri skýrleika.
-
Rissaðu upp aðstæður þínar.Að teikna getur stundum hjálpað þér að átta þig betur á áskorun en með því að færa hana í orð. Segjum sem dæmi að teymi þitt sé að undirbúa ferli í fyrsta sinn. Að kortleggja lokamarkmiðið, áfangana og hina ýmsu hagsmunaaðila og áhættur kann að hjálpa þér að sjá hvernig þetta passar allt saman.
-
Notaðu tækni til vandamálalausnar, t.d. 5 Whys til að komast að rótum vandamálsins.t.v. veistu að þú stendur frammi fyrir vandamáli en skortir skýrleika til að leysa það. Til að grafa upp mögulegar orsakir sem gætu leitt þig í rétta átt, prófaðu þá að ráðast í hugmyndavinnu til að útbúa einfaldan lista um „hvað gæti verið í gangi“.