ÞEKKINGARBRUNNUR LÍFSLEIKNI
LEIÐTOGINN Í MÉR ER ÞEKKINGARBRUNNUR FRANKLINCOVEY Á SVIÐI LÍFSLEIKNI FYRIR SKÓLA
TIL AUKINS ÁRANGURS NEMENDA, KENNARA OG SAMFÉLAGS.
LEIÐTOGINN Í MÉR
Okkur er annt um velferð og vöxt barna og fjölskyldna og trúum á ótakmarkaða getu hvers og eins til að hafa áhrif á betri heim. Þekkingarsamfélag okkar kallar eftir næstu kynslóð leiðtoga sem skapa jákvæðar breytingar, hvetja aðra til að hugsa öðruvísi, viðra sýnar skoðanir af virðingu og festu, hvetja til framfara, og bæta stöðugt heiminn. Við bjóðum aðgang að vönduðu skemmtilegu og áhrifaríku efni á sviði lífsleikni fyrir nemendur á öllum aldri, kennara og fjölskyldur.
Færum nemendum þá kunnáttu og færni
sem sem þau þurfa í dagsins önn.
Börn eru einstök og þróa með sér getu til sjálfsöryggis og þroska, en þau þurfa meira en eingöngu fræðin. Þau þurfa að tileinka sér nauðsynlega félagslega og tilfinningalega færni til að blómstra í okkar þekkingarsamfélagi.
Þekkingarbrunnurinn er hannaður með hliðsjón af þroska, færniþáttum, áskorunum og ólíkum miðlum innan og utan kennslustofunnar. WWW.LEADERINME.COM er hafsjór af handbókum og kennsluáætlunum fyrir kennara á öllum skólastigum, verkefnum fyrir nemendur og fjölskyldur og stafrænu námi. Að auki er innbyggt í kerfið árangursmælingar fyrir nemendur, foreldra og starfsmenn. Leiðtoginn í mér er rökrænt, vel skipulagt ferli sem hjálpar skólum að hanna á virkan hátt menningu sem endurspeglar sýn þeirra um fyrirmyndarskólastarf.
Við styðjumst við sannreyndar aðferðir og alþjóðleg lögmál.
Leiðtoginn í mér umbreytir skólum í samstarfi við kennara, nemendur og foreldra og færir börnum á öllum aldri færni og forystu sem til þarf til að blómstra á 21. öldinni. Nálgunin byggir á grunni lögmála og færni persónulegs árangurs og framfara í samskiptum og á vinnustöðum. Við trúum því að hvert barn býr yfir einstökum styrkleika og hefur getuna til að leiða sjálft sig og aðra til árangurs.
Við erum spennt að bjóða ykkur velkomin í nýja og endurbætta þekkingargátt okkar Leiðtoginn í mér á vefnum (Leader in Me Online). Með notkun stafrænnar tækni höfum við skapað ferska upplifun sem styður við sýn Franklin Covey Education um vöxt og jákvæð áhrif nemenda. Þekkingargáttin býður upp á úrval af fagþjálfun fyrir kennara, námsefni fyrir nemendur, hagnýt ráð fyrir öflugt skólastarf og er í stöðugri uppfærslu.
Leiðtoginn í mér hagnýtir og samþættir fjölmörg líkön sem varða forystu, félagslegt/tilfinningalegt nám, gæði og menntun við ferli þróuð af leiðandi sérfræðingum. Leiðtoginn í mér ferlið felur í sér þjálfun fyrir starfsmenn við mótun framtíðarsýnar fyrir skólann, markmiðasetningu á grunni aðalnámskrár – einkum að þáttum sem snúa að lífleikni, forystu og samskipta.
Leiðtoginn í mér aðstoðar nemendur við að auka sjálfstraust, sýna frumkvæði, vera virk, skipuleggja sig, setja og ná markmiðum, klára heimavinnuna, forgangsraða, stjórna tilfinningum sínum, sýna tillit , tjá sig með áhrifaríkum hætti, leysa ágreining, finna skapandi lausnir, virða fjölbreytileika og ólíkar skoðanir og finna jafnvægi. Þessi lífsleikni færir börnum á öllum aldri getu, viðhorf, færni og traust til að blómstra í skóla og lífinu sjálfu.
Leiðtoginn í mér er ólíkt öðrum umbreytingarferlum fyrir skóla að því leiti að það felur í sér heildræna upplifun og stuðning fyrir starfsfólk, nemendur og foreldra, auk þess sem það kemur á sameiginlegu orðfæri og menningu innan skólans. Forystulögmál, lífsleikni og námsefni er ekki kennt sem námsskrá heldur er efnið fellt inn í núverandi verkefnavinnu, námsskeið, hefðir, kerfi og menningu.
Leiðtoginn í mér hefur þann tilgang að:
-
Skapa menningu trausts og ábyrgðar.
-
Efla nemendur við að lifa eigin lífi og skipta sköpum í lífi annarra.
-
Veita nemendum verkfæri til að ná betur markmiðum sínum.
-
Þróa persónulega forystu nemenda.
"Just as we develop our physical muscles through overcoming opposition - such as lifting weights - we develop our character muscles by overcoming challenges and adversity. "
-STEPHEN COVEY
Leiðtoginn í mér (Grunnskólar)
Uppgötvaðu hvernig tímalaus og tímanleg lögmál geta haft áhrif á árangur þinn.
Leiðtoginn í mér er ferli sem byggir á rannsóknum um hvernig megi umbreyta menningu skólasamfélags til að efla félagslega færni nemenda, auka tilfinningagreind og færni í mannlegum samskiptum.
Leiðtoginn í mér byggir á núverandi kjarnastarfi skólans og styður við betri námsárangur, og virkjar viljann til að taka þátt í leik og starfi og síðast en ekki síst bera ábyrgð á eigin lífi og líðan. LÍM er heildrænt umbreytingarlíkan fyrir skóla sem virkar líkt og stýrikerfi tölvu, þ.e. það bætir frammistöðu allra annarra þátta og smitar út frá sér jákvæðni, kjarki og þrautseigju til allra hlutaðeigandi. LÍM samþættir sannreynd gildi forystu og skilvirkni inn í námsskrá skólans með notkun almenns tungutaks og hagnýtra verkefna sem hæfir aldri nemenda og allir skilja. Sameiginlegt tungumál gerir öll samskipti, umfjöllun og úrlausn daglegra viðfangsefna einfaldari og skemmtilegri.
Sean Covey, framkvæmdastjóri menntasviðs FranklinCovey og höfundur bókanna 7 venjur kátra krakka og 7 Habits of Highly Effective Teens deilir með okkur sinni framtíðarsýn og reynslu fyrirmyndarskóla.
Aðrir áhugaverðir valkostir
Lausnir sem þjóna ykkar þörfum.
Leiðtoginn í mér | LEIKSKÓLAR
Lífsleikni fyrir leiðtoga á öllum aldri. Sjö skemmtilegar sögur með verkefnum og hugleiðingum fyrir lífstíð! Einstök bók fyrir öfluga krakka, flotta foreldra og fyrirmyndar afa og ömmur. Sjö fallega myndskreyttar sögur varpa ljósi á hvernig börn geta tekið við stjórninni á lífi sínu, forgangsraðað með stæl og fundið jafnvægi.
SKOÐA BETUR
Leiðtoginn í mér | GRUNNSKÓLAR
Ímyndaðu þér heim þar sem hlúð er að forystuhæfileikum og ábyrgð hvers barns og lögð er áhersla á að rækta og þróa leiðtogaeiginleika þess óháð félagslegri eða fjárhagslegri stöðu, menntun, heimilisaðstæðum eða bakgrunni. Þekkingarsamfélag okkar kallar eftir næstu kynslóð leiðtoga sem skapa jákvæðar breytingar, hvetja aðra til að hugsa öðruvísi, viðra sýnar skoðanir af virðingu og festu, hvetja til framfara, og bæta stöðugt heiminn…
SKOÐA BETUR
Leiðtoginn í mér | ÞEKKINGARBRUNNUR LÍFSLEIKNI
Þekkingarbrunnurinn er hannaður með hliðsjón af þroska, færniþáttum, áskorunum og ólíkum miðlum innan og utan kennslustofunnar. WWW.LEADERINME.COM er hafsjór af handbókum og kennsluáætlunum fyrir kennara á öllum skólastigum, verkefnum fyrir nemendur og fjölskyldur og stafrænu námi. Að auki er innbyggt í kerfið árangursmælingar fyrir nemendur, foreldra og starfsmenn. Leiðtoginn í mér er rökrænt, vel skipulagt ferli sem hjálpar skólum að hanna á virkan hátt menningu sem endurspeglar sýn þeirra um fyrirmyndarskólastarf.