Þjálfun innanhúss þjálfara (TTT)
FranklinCovey hefur vottað fleiri en 45.000 „innanhúss“ þjálfara á vinnustöðum um allan heim („Train the Trainer“ TTT). Um er að ræða hagkvæma og áhrifaríka leið til að efla fólk og fyrirtæki með verðlaunuðum lausnum FranklinCovey.
Við bjóðum stærri viðskiptavinum að vinna með allt efni FranklinCovey með eigin þjálfurum (Client Facilitation). Vinnustaðir geta því nýtt sér okkar áhrifaríku nálgun með því að votta valda starfsmenn sem leiðbeinendur, við útvegum efni, kennslugögn og matstæki og þið sjáið um þjálfun starfsmanna!
Ávinningur allra
Innanhúsleiðbeinendur (client facilitators) fá ítarlega þjálfun og stuðning (í fjar- og staðarnámi) og hljóta kennararéttindi í völdum lausnum.
Innanhúsleiðbeinendur nýta síðan efni FranklinCovey (þar með talið glærusöfn, myndbönd, æfingar, verkefni…), með vönduðum þjálfarahandbókum og kennslugögnum (bækur, tæki, læst vefsvæði…), og hafa aðgang að matstækjum, öppum ofl. fyrir starfsmenn.
Þannig helst ykkar bragur á öllum vinnustofum, efnistök tengjast beint stefnu og sókn viðkomandi vinnustaðar og innleiðing er mun áhrifameiri. Um er að ræða einstaklega vandað og skemmtilegt efni að vinna með og leiðbeinendur fá aðgang að öflugu alþjóðlegu samfélagi þjálfara. Fyrir stærri vinnustaði er þetta mun hagkvæmari kostur.