TRYGGÐU TRYGGÐ VIÐSKIPTAVINA:
7 VENJUR FRAMÚRSKARANDI ÞJÓNUSTU
FÆRÐU VALDIÐ OG ÞEKKINGUNA TIL FRAMLÍNUNNAR
TRYGGÐU TRYGGÐ VIÐSKIPTAVINA:
7 venjur framúrskarandi þjónustu
Viðskiptavinir kalla eftir lausnum á augnabliki sannleikans—er framlínan þín klár í slaginn?
-
„Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að vera í samstarfi við FranklinCovey sem fyrrum forstöðumaður Opna háskólans í HR og núverandi mannauðs- og gæðastjóri Landbúnaðarháskóla Íslands. Stjórnendur og starfsmenn Landsbúnaðarháskólans gengu til samstarfs við FranklinCovey síðastliðinn vetur um annars vegar stjórnendaþjálfun í anda „4 Essential Roles of Leadership“ og hinsvegar þjálfun í 7 venjum til árangurs fyrir alla starfsmenn. Guðrún Högnadóttir leiddi þjálfunina, var frábær leiðbeinandi, skýr, ávallt vel undirbúin, skemmtileg og umfram allt beitt þegar á þurfti að halda. Námsefnið var sérsniðið að þörfum stofnunarinnar og kennsluaðferðir voru afar fjölbreyttar hvort sem að kennslan fór fram í fjar- eða staðarþjálfun.“
Guðmunda Smáradóttir
Mannauðs- og gæðastjóri hjá Landbúnaðarháskóla Íslands -
Hugmyndafræði “7 venja árangursríkra stjórnenda” hefur reynst mér gríðarlega vel á vegferð minni að ná fram stöðugum umbótum og vaxa sem leiðtogi, bæði í einkalífi og vinnu. Ég hef nokkrum sinnum setið námskeið um 7 venjur til árangurs og bókin heldur alltaf sínum sess á náttborðinu þó svo aðrar bækur komi og fari. Á námskeiðinu fer Guðrún Högnadóttir í gegnum efnið af mikilli fagmennsku en ekki sýst einlægni, setur viðfangsefnið í samhengi við raunveruleikan með reynslusögum og virkjar þátttakendur til að miðla sinni reynslu.
Námskeiðið bíður upp á einföld og tímalaus tól til árangurs; ná betri stjórn og forgangsröðun á það sem skiptir sannarlega máli, vera forvirk og grípa til aðgerða. Stuðla að árangursríkum samskiptum við samferðafólk og hefja það upp til árangurs. Síðast en ekki síst, að endurnærast sem einstaklingur og ná jafnvægi milli einkalífs og vinnu til að geta haldið áfram að vaxa og dafna sem leiðtogi.
Sæunn Björk Þorkelsdóttir
forstöðumaður innkaupa og vörustýringar hjá Controlant -
Teymi FranklinCovey á Íslandi hefur stutt okkur með þjálfun sem tekur mið af gildum fyrirtækisins almennt og þeim sértæku áskorunum sem við stöndum frammi fyrir hverju sinni. Sjö venjur til árangur hafa persónulega verið mér ómetanlegt veganesti bæði í einkalífi og í starfi.
María Ósk Kristmundsdóttir
Verkefnastjóri hjá Alcoa -
Hittir í mark bæði hjá reynslumiklum og reynslulitlum stjórnendum. Gefur stjórnandanum verkfæri sem auðvelt er að grípa til við ólíkar aðstæður. Setur hlutina í samhengi og höfðar til manneskjunnar sjálfrar og hennar eigin ábyrgð á árangri.
Elín Hjálmsdóttir
Framkvæmdastjóri mannauðssviðs Eimskips -
„Nálgun Coveys um grunnþætti árangurs í lífi og starfi er í senn tímalaus og mjög svo tímanleg. Vinnustofa 7 venja til árangurs færði stjórnendateymi Kópavogsbæjar ný viðhorf, færni og aðferðir til að efla okkur enn frekar í að þjóna spennandi verkefnum sveitafélagsins.“
Ármann Kr. Ólafsson
Bæjarstjóri Kópavogs -
„Einföld og hagnýt yfirferð á lykilatriðum til árangurs. Ég hef stuðst við efni bókarinnar í lífi og starfi frá fyrsta degi eftir að hafa lesið hana, gríp oft til hennar fyrir innblástur og mæli með henni í hvívetna við hvern þann sem vill hafa áhrif og skara framúr.“
Salóme Guðmundsdóttir
Framkvæmdastjóri Icelandic Startups -
„Ég setti mér ný markmið eftir lestur bókarinnar. Það er gott að hafa markmið en það sem er enn mikilvægara er að vita hvernig maður ætlar að komast þangað og þá sýn fékk ég eftir mjög gott námskeið í 7 venjum til árangurs. Takk fyrir mig!“
Gunnur Helgadóttir
Framkvæmdastjóri Vistor -
“Bókin 7 venjur til árangurs er ein af þeim bókum sem að liggja reglulega á náttborðinu mínu. Sígildur og áhrifamikill boðskapur bókarinnar hefur hjálpað mér að ná árangri í starfi og ekki síður verið mér mikil hvatning í persónulegu lífi.”
Elísabet Einarsdóttir
Starfsmannastjóri Íslandshótela -
„Rétt eins og Newton færði okkur aukinn skilning á þyngdarlögmálinu þá hefur Covey fært okkur skilning á þeim lögmálum sem liggja að baki velgengni í lífi og starfi. Flóknara er það ekki.“
Kristinn T. Gunnarsson
Ráðgjafi -
„Í gegnum lífið áttu nokkur „AHA-augnablik“ en 7 Venjur til árangurs er eitt stærsta „AHA-augnablik“ sem ég hef átt. Persónulegur vöxtur og skilningur minn á sjálfum mér hefur gefið mér ótrúlegt sjálfstraust og styrk. Ég get ekki beðið eftir að færa samstarfsmönnum mínum hjá Securitas þessa gjöf sem Venjurnar 7 eru.“
Hlíf Böðvarsdóttir
Mannauðsstjóri Securitas -
„Bókin um venjurnar 7 er ein mest selda viðskiptabók allra tíma og ein áhrifamesta bók sem notuð hefur verið í leiðtogaþjálfun um allan heim. Hún fjallar um miklu meira en bara viðskipti og þjálfun leiðtoga. Hún fjallar um bestun í persónulegri hegðun til að hámarka árangur í hverju því sem menn takast á hendur, hvort heldur er í vinnu eða einkalífi. Það geta allir látið sig dreyma en bókin hjálpar fólki til að gera drauma að veruleika með því að setja sér metnaðarfull markmið og ná þeim með skipulögðum hætti. Þessi bók ætti að vera skyldulesning í öllum framhaldsskólum á Íslandi.“
Hreggviður Jónsson
Aðaleigandi og stjórnarformaður Veritas Capital -
„Að öðrum ólöstuðum er Covey framúrskarandi þegar kemur að skrifum um raunverulegan og langvarandi árangur í lífi og starfi. Tímalaus viska hans og lífsreglur eru lykill að farsælu ferðalagi, hversu farsælt ferðalagið verður er þó undir lesandanum einum komið. Þá reynir fyrst og síðast á einbeitan vilja til að axla ábyrgð á eigin velferð og samferðamanna.“
Arnar Hreinsson
Útibússtjóri Landsbankanum -
„7 venjur til árangurs er frábær bók sem hjálpar okkur ekki bara að ná persónulegum árangri heldur hjálpar hún okkur til að hafa jákvæð áhrif á alla í kringum okkur. Hún inniheldur afar verðmæta leiðsögn um hvernig við getum veitt betri forystu í lífi okkar. Þessi einstaka bók sáir fræjum sem hætta aldrei að vaxa!“
Sigurður Ragnarsson
Forseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst -
„Ein af þeim bókum sem hittir í mark og nær um leið tengingu við lesandann með sýnilegum og áþreifanlegum hætti. Venjurnar sjö hafa haft með mjög árangursríkum hætti áhrif á mig sem einstakling sem og leiðtogahæfni mína. 7 Venjur er leiðarvísir í þá átt að laða fram það allra besta í hverjum einstaklingi sem er mikil verðmæti fyrir samfélagið jafnt sem skipulagsheildina.“
Sigurður B. Pálsson
Forstjóri Byko -
„Lestur bókarinnar og þjálfun starfsmanna okkar er verulega til gagns. Í raun snýst þetta um heilbrigða skynsemi og öguð vinnubrögð, forgangsröðun og skipulag. Og þar sem „common sense is not so common“ veitir þetta mjög gagnlegt aðhald og áminningu um hvernig best er að haga verkum. Það er í raun ekki hægt að gleyma leiðbeiningunum, bara að rifja upp að til eru 7 venjur og þá fylgir allt hitt með.“
Ásgeir Margeirsson
Forstjóri HS Orku -
„Sýn Coveys á árangursríkar aðferðir fyrir einstaklinga og liðsheildir er í senn áhugaverð og uppbyggjandi. 7 Venjur til árangurs fjallar um hagnýtar leiðir til að vaxa og dafna í nútíma þekkingarsamfélagi. Lesning sem nýtist öllum til aukins árangurs í lífi og starfi.“
Dr. Svafa Grönfeldt
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Alvogen -
„Tímalaus sýn Coveys á árangur einstaklinga í einkalífi og á vinnustað á svo sannarlega við í dag. Bók hans varpar ljósi á klassíska nálgun til að bæta verulega árangur í lífi og starfi, og hann kryddar framsetninguna með skemmtilegum dæmisögum, áhrifaríkum og hagnýtum aðferðum.“
Gylfi Sigfússon
Forstjóri Eimskipafélags Íslands -
„Covey kom auga á þær forsendur frammistöðu sem hafa varðað vöxt okkar – jákvæðni, áreiðanleika, hagkvæmni og framsækni. Vinnustofa stjórnenda í 7 venjum ræktaði enn frekar jarðveg árangurs hjá Ölgerðinni.“
Andri Þór Guðmundsson
Forstjóri Ölgerðarinnar -
„Það eru stórar lexíur í þessari bók. Öflug verkfæri sem geta flutt fjöll úr stað. Í mínu tilfelli kenndi þessi bók mér að spyrja: Hvað er mér raunverulega mikilvægt? Og hvað er bara áríðandi?“
Benedikt Erlingsson
Leikstjóri og kvikmyndaframleiðandi -
„Ég las þessa 7 Venjur til árangurs á fyrstu árunum í atvinnumennskunni í handbolta og var allan minn feril að reyna að temja mér innihald hennar.“
Ólafur Stefánsson
Handboltamaður
Áskorunin
Virkjaðu teymið þitt til að vinna hjarta hvers viðskiptavinar.
Vertu fyrst viss um að vinna hjörtu þeirra sem þjóna viðskiptavinum þínum. Meira en 70% af upplifun viðskiptavina stýrist af framkomu framlínustarfsmanna.
Ef þeir eru ákafir talsmenn vöru ykkar og þjónustu, eru viðskiptavinir þínir líklegri til að vera líka sannir talsmenn ykkar. Starfsmenn þurfa að upplifa að þeir séu meðlimir sigurliðs sem þjónar mikilvægum tilgangi. Það kallar á öfluga forystu að hanna, hvetja og leiða slík teymi.
"One customer well taken care "of" could be more valuable than $10,000 worth of advertising."
- JIM ROHN
Lausnin
Fangaðu og nýttu þér sannreynd lögmál framúrskarandi þjónustu.
Virkjaðu leiðtoga framlínunnar til að fara fram úr væntingum viðskiptavina.
Við einblínum á mikilvægustu viðhorfsbreytinguna sem við þurfum að tileinka okkur til að byggja menningu góðrar þjónustu. Þessi viðhorf leyfa starfsmönnum að sjá sjálfa sig og viðskiptavini þeirra í nýju ljósi.
Starfsmenn læra að:
- Koma auga á öll tækifæri til að þjóna af einlægni og ástríðu.
- Sýna hegðun sem skapar viðskiptavinatryggð.
- Hafa þessa hegðun efst í huga þrátt fyrir hvirfilvind hversdagsins.
- Skilgreina þeirra einstöku styrkleika á sviði þjónustu.
- Umbreyta ósáttum viðskiptavinum í ákafa talsmenn ykkar.
Niðurstaðan
Náðu árangri með því að setja viðskiptavininn fremst.
Viðskiptavinurinn í forgang.
Flest námskeið í þjónustu einblína á færni – hvað á að segja og gera. Hjá FranklinCovey, tökum við aðra nálgun „innanfrá og út“ og vinnum með viðhorf þín og gildi – hver þú ert – til að skapa menningu þar sem allir setja viðskiptavininn í forgang.
Vinnustofan byggir á tveimur tímamótabókum eftir virta höfunda í persónulegum árangri og þjónustu: Stephen R. Covey, höfund 7 venja til árangurs, sem hefur verið seld í meira en 25 milljón eintökum og Fred Reichheld, höfund metsölubókarinnar The Ultimate Question 2.0, Bain Fellow og hönnuð NPS.