fbpx
0
Nánar um Guðrúnu
Guðrún er framkvæmdastjóri og meðeigandi (Managing Partner) FranklinCovey | Arctic og fyrrverandi framkvæmdastjóri Opna háskólans í HR.  Auk stjórnunarstarfa og kennslu við HR hefur hún unnið síðastliðin ár sem leiðbeinandi og markþjálfi (executive coach) í íslensku atvinnulífi og leitt fjölda vinnustofa um árangur liðsheilda og vinnustaða.
Guðrún er heilbrigðisrekstrarhagfræðingur að mennt og lauk MHA gráðu (Master of Healthcare Administration) frá University of North Carolina at Chapel Hill árið 1991 og BSPH gráðu (Bachelor of Science in Public Health) frá sama skóla með áherslu á sjúkrahússtjórnun og mannauðsstjórnun. Guðrún lauk AMP (Advanced Management Program) frá IESE/HR árið 2008.

Guðrún er vottaður ACC markþjálfi hjá ICF (International Coaching Federation) og lýkur PCC vottun á þessu ári. Hún hefur starfað sem markþjálfi (executive coach) frá árinu 2003 með innlendum og erlendum stjórnendum. Guðrún starfaði við stjórnunarráðgjöf frá 1998 til 2003 einkum á sviði stefnumótunar, skipulags- og mannauðsmála og gæðastjórnunar og var meðeigandi Deloitte & Touche Ráðgjafar. Á árunum 1991 til 1997 var Guðrún fræðslustjóri Ríkisspítala og forstöðumaður gæða- og þróunarskorar Landspítalans. Guðrún hefur unnið með fjölda innlendra og erlendra vinnustaða sl. ár sem leiðbeinandi, ráðgjafi og lóðs auk þess að flytja erindi, stýra vinnufundum og kenna á háskólastigi. Sérsvið Guðrúnar eru persónulegur árangur og forysta, stefnumörkun, innleiðing stefnu, árangursstjórnun og markþjálfun. Guðrún situr jafnframt í stjórn nokkurra íslenskra fyrirtækja, fagfélaga og góðgerðarsamtaka.

Nánar um Kristinn
Kristinn Tryggvi Gunnarsson er viðskiptafræðingur að mennt og lauk B.S. prófi í stjórnun frá University of North Carolina og MBA prófi frá University of Georgia.  Kristinn hefur víðtæka stjórnunarreynslu, starfaði í sjö ár hjá Íslandsbanka, lengst af sem útibússtjóri og fjögur ár hjá SPRON sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs og síðar markaðsmála.  Á tímabilinu 2002-2008 starfaði Kristinn hjá Capacent, fyrst sem ráðgjafi, síðar framkvæmdastjóri ráðgjafarsviðs og síðustu tvö árin sem forstjóri Capacent á Íslandi.  Árið 2009 var Kristinn einn að stofnendum Expectus og starfaði þar við ráðgjöf og stjórnun þar til hann gekk til liðs við FranklinCovey í apríl.  Kristinn hefur starfað með fjölmörgum af stærstu fyrirtækjum landsins á sviði stefnumótunar, markaðs- og þjónustumála.  Hann kennir við Opna háskólann í HR og starfaði sem stundakennari við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík um níu ára skeið, þar sem hann kenndi þjónustustjórnun, leiðtogafræði og breytingarstjórnun.  Hann hefur mikla reynslu af lóðsun og stjórnendaþjálfun og hefur auk réttinda frá FranklinCovey lokið þjálfun hjá Project Adventure, Corporate Lifecycles, Lego Serious Play, Blue Ocean Strategy, Corporat Coach U og SHL.
Nánar um Þóru
Þóra Sif er þjónustustjóri / Inside Business Partner IBP FranklinCovey á Íslandi og verkefnastjóri / Executive Assistant fyrir menntasvið FranklinCovey (Leader In Me). Þóra Sif er með burtfararpróf frá FÍH í jazzsöng og rytmískri tónlistarkennslu, hún situr einnig sem gjaldkeri í stjórn Kítón (Konur í tónlist) og formaður í stjórn Hljómlistarfélags Borgarfjarðar ásamt því að kenna söng við Tónlistarskóla Borgarfjarðar.
Nánar um Kolbrúnu
Kolbrún starfar við markaðsmál og almannatengsl hjá FranklinCovey á Íslandi. Hún kláraði Bachelor of science gráðu í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík og lauk meistaragráðu í félagssálfræði og samskiptafræði frá London School of Economics and Political Science (LSE).
Nánar um Jönu
Jana Katrín annast grafík og þýðingar hjá FranklinCovey á Íslandi. Hún lauk við nám í grafískri miðlun vorið 2021.
Nánar um Elínu
Elín starfar sem mannauðsstjóri hjá Heilsuvernd og leiðir þar málaflokk mannauðsmála ásamt þróun og ráðgjöf. Hún hefur víðtæka reynslu á sviði stjórnunar, stefnumótunar og mannauðsmála en hún starfaði um árabil sem framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Eimskip þar sem hún byggði upp og rak málaflokkinn á alþjóðavísu. Verkefni á sviði ráðgjafar, stefnumótunar, ferlavinnu, stjórnunar, fræðslu, samskipta, teymisvinnu og liðsheildar eru henni því vel kunn auk þess að hafa leitt launa- og kjaraþróun og verið í forsvari fyrir fyrirtækið í kjarasamningaviðræðum.

Elín er menntaður viðskiptafræðingur með MBA próf frá Háskólanum í Reykjavík og er vottaður umbreytingamarkþjálfi frá “Coach Masters Academy” í Singapore. Hún hefur setið í stjórn nokkurra fyrirtækja auk þess að hafa setið í stjórn Samtaka atvinnulífsins (2018-2020) og Samtaka verslunar- og þjónustu (2017-2020). Hún situr nú í stjórn Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs og Flugakademíunnar.

Nánar um Ragnar

Ragnar er ráðgjafi og stjórnarformaður Expectus.  Hann hefur stýrt verkefnum fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins á sviði stefnumótunar, skipulagsvinnu, fjármála og breytingarstjórnunar. Hann hefur mikla reynslu á sviði endurbóta á ferlum, þróunar stjórnunarupplýsinga og notkunar upplýsingatækni til hagræðingar í rekstri. Reynsla Ragnars á sviði stjórnunar og fjármálaþekking hans sem endurskoðanda hafa skapað honum sérstöðu sem nýtist vel í innleiðingu stefnu og árangursstjórnun.

Hann er með löggildingu í endurskoðun 1992 og er Cand Oecon í viðskiptafræði 1989 frá Háskóla Íslands.

Nánar um Sindra
Sindri er stjórnunarráðgjafi hjá Expectus. Hann hefur starfað með mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins á hinum ýmsu sviðum, m.a. við stefnumótun, fjármála og árangurstjórnun, áætlanagerðir og við endurhönnun viðskiptaferla. Hann hefur mikla reynslu í að aðstoða fyrirtæki við að straumlínulaga ferla og bæta rekstur þeirra með því að nýta þau gögn sem til staðar eru í viðskiptakerfum fyrirtækja og breyta þeim í lykiltölur fyrir stjórnendur. Sindri er með MSc í aðgerðarrannsóknum og Bsc í iðnaðarverkfræði. Hann var áður forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Skeljungi og stýrði þar innleiðingu stefnumótunar, úrbótavinnu og uppsetningu stefnumarkandi mælinga hjá félaginu. Áður leiddi hann m.a. framleiðsluþróun hjá Actavis hf. og var í framkvæmdastjórn félagsins.
Nánar um Aðalheiði
Aðalheiður er stjórnunarráðgjafi og markþjálfi. Hún hefur starfað með mörgum af fyrirtækjum við stefnumótun og ráðgjöf við innleiðingu breytinga.

Hún hefur mikla reynslu í að aðstoða fyrirtæki við að takast á við nýjar áskoranir, straumlínulaga ferla og bæta rekstur þeirra og styðja stjórnendur og starfsmenn í breytingum.  Aðalheiður er með MBA og BA í heimspeki auk þess að vera markþjálfi og einkaþjálfari.

Aðalheiður hefur kennt við Opna háskóla HR, Tækniskólanum  og haldið fjölmarga fyrirlestra og námskeið um þjónustustjórnun, straumlínustjórnun og áskoranir í breytingum.

Fyrri reynsla Aðalheiðar er viðtæk en hún meðal annars  unnið sem stjórnandi, mannauðsstjóri, verkefnastjóri og starfað sem aðstoðarmaður ráðherra.

Nánar um Maríu
María er með BA gráðu í leiklist frá New York háskólanum og starfar sem leikari, leikstjóri og höfundur. María er vottaður þjálfari frá FranklinCovey í 7 Habits og  Five Choices og er að  ljúka þjálfun í Presentation Advantage frá FranklinCovey.   Hún er með margra ára reynslu sem stjórnendaþjálfari og fyrirlesari og hefur kennt á fjölda námskeiða í Opna háskólanum í HR, í akademískum deildum skólans og hjá Capacent.  María hefur unnið með námsefni FranklinCovey síðan 2007.
Nánar um Sigríði
Sigríður Þrúður starfar sem mannauðsstjóri Kópavogsbæjar.  Hún starfaði áður sem skrifstofustjóri skrifstofu Starfsþróunar – og starfsumhverfis Reykjavíkurborgar á Mannauðs- og starfsþróunarsviði og ráðgjafi á sviði mannauðsstjórnunar og stefnumótunar.

Sigríður Þrúður hefur komið að öllum verkþáttum mannauðsstjórnunar frá ráðningum til starfsloka þ.m.t. kjaramálum, þjálfun og starfsþróun, gerð frammistöðumats, endurgjöf og ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks, innleiðingu markþjálfunar og uppbyggingu og framkvæmd stjórnendaþjálfunar.  Sigríður Þrúður starfaði sem mannauðsstjóri og mannauðssérfræðingur hjá Marel á Íslandi, sem forstöðumaður Ferðamálaskólans í Kópavogi, aðstoðarskólastjóri Menntaskólans Hraðbrautar, forstöðumaður Ferðamálaskólans í Kópavogi í MK og er stofnandi og ráðgjafi hjá HRM rannsóknir og ráðgjöf sem sérhæfir sig í mannauðsráðgjöf. Hún hefur leitt fjölmörg ráðgjafaverkefni á sviði mannauðs og ferðaþjónustu m.a. gerð þarfagreiningar fyrir fræðslu og þjálfun í ferðaþjónustu, stefnumótun í ferðaþjónustu fyrir sveitarfélög og gerð stjórnendahandbókar um starfsmannamál.

Sigríður Þrúður lærði ferðamálafræði og stjórnun við University of Strathclyde, er með MSc í stjórnu og, stefnumótun með áherslu á mannauðsstjórnun frá HÍ, kennsluréttindi frá HÍ og markþjálfi frá HR. Hún hefur kennt við Háskólann í Reykjavík, Opna háskólann, Ferðamálaskólann og Menntaskólann í Kópavogi og fjölmörg önnur námskeið í ferðaþjónustu.

Nánar um Guðfinnu

Guðfinna er meðeigandi og stjórnandi í LC Ráðgjöf. Hún útskrifaðist frá West Virginia University í Bandaríkjunum árið 1991 með doktorsgráðu í atferlisfræði með áherslu á stjórnun (performance management).

Áður hafði hún lokið MA gráðu frá sama háskóla og BA gráðu í sálfræði við Háskóla Íslands. Guðfinna stofnaði árið 1991 ráðgjafafyrirtækið LEAD Consulting í Bandaríkjunum ásamt eiginmanni sínum, og ráku þau fyrirtækið í nær áratug.

Guðfinna var fyrsti rektor Háskólans í Reykjavík (1998-2007). Hún var alþingismaður árið 2007-2009. Sem ráðgjafi hefur hún þjónað fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum víða um heim.

Nánar um Evu
Eva útskrifaðist frá Háskólanum í Reykjavík árið 2003 með BSc gráðu í tölvunarfræði og hefur fjölbreyttan starfsferil að baki í bæði bókhaldi og vefsíðugerð. Eva starfar í dag sem aðalbókari hjá Iraco ehf. Áður starfaði hún m.a. í bókhaldsdeild Íslandspósts, Terra Nova og fl. Hún vann hjá Netbókhald.is við ráðgjöf og notendaþjónustu, sem verkefnastjóri í vefdeild Davíð og Golíat og í vefteymi Íslandsbanka. Að auki hefur Eva rekið eigin bókhaldsþjónustu í rúm 20 ár. Eva hefur einnig setið í stjórn og fræðslunefnd Félags viðurkenndra bókara í fjölmörg ár.
Nánar um innri þjálfara
Vertu forgöngumaður á þínum vinnustað.  Viðvottum innri þjálfara í öllu okkar efni – og bjóðum öflugum vinnustöðum aðgang að öllu okkar efni og matstækjum til eigin sóknar.