Skráning á fjarvinnustofu
7 venjur til árangurs – grunnur færir þátttakendum nýja sýn og aðferðir til að auka árangur sinn á sviði tímastjórnunar, forgangsröðunar, markmiðasetningar, samningatækni, nýsköpunar, samskipta, áhrifa og ábyrgðar.
Á vinnustofunni læra þátttakendur að:
- Taka fulla ábyrgð á niðurstöðum.
- Koma auga á það sem skiptir mestu máli í vinnu þeirra og persónulega lífi.
- Forgangsraða og ná mikilvægustu markmiðum sínum, í stað þess að bregðast stöðugt við því sem er áríðandi.
- Vinna betur með öðrum með því að byggja upp sambönd sem grundvallast á trausti og sameiginlegum hag.
- Eiga áhrifaríkari samskipti á öllum sviðum lífs síns, þ.m.t. í hinum stafræna heimi.
- Nálgast vandamál og tækifæri gegnum skapandi samvinnu.
- Samþætta stöðugar umbætur og lærdóm.