Árangur á óvissutímum
Á óvissutímum reynir á samstíga teymi og öfluga forystu. Í ljósi atburða síðastliðna vikna höfum við tekið saman góð ráð og leiðbeiningar fyrir stjórnendur og starfsmenn. Í myndskeiðinu hér fyrir neðan færir Victoria Roos Olsson, alþjóðlegur ráðgjafi FranklinCovey, okkur fimm hagnýt ráð til þess að hjálpa þér að halda einbeitingu, afköstum og gleði teyma á erfiðum tímum.