ÞJÓNUSTUSTJÓRNUN
TRYGGÐU TRYGGÐ VIÐSKIPTAVINA MEÐ LEADING CUSTOMER LOYALTY ™
ÞJÓNUSTUSTJÓRNUN
Meira en 70% af frábærri upplifun viðskiptavina byggir á framkomu og hegðun framlínustarfsmanna. Þjónustuviðhorf, heðgun og ferlar gerast ekki að sjálfu sér. Góð þjónusta byggir á sýn, hvatningu og ábyrgð sem kallar á einlæga virkni og áhuga allra.
-
Það var einstaklega ánægjulegt að vinna með og útfæra efni Franklin Covey og samtvinna það þjónustustefnu Strætó. Að tryggja tryggð viðskiptavina er mikilvægur þáttur í allri þjónustustjórnun en efnið hentar ekki síður inn í teymi þar sem unnið er með grundvallarþætti samskipta og trausts; samkennd, ábyrgð og örlæti.
Sigríður Harðardóttir
Sviðsstjóri mannauðs- og gæðasviðs -
„Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að vera í samstarfi við FranklinCovey sem fyrrum forstöðumaður Opna háskólans í HR og núverandi mannauðs- og gæðastjóri Landbúnaðarháskóla Íslands. Stjórnendur og starfsmenn Landsbúnaðarháskólans gengu til samstarfs við FranklinCovey síðastliðinn vetur um annars vegar stjórnendaþjálfun í anda „4 Essential Roles of Leadership“ og hinsvegar þjálfun í 7 venjum til árangurs fyrir alla starfsmenn. Guðrún Högnadóttir leiddi þjálfunina, var frábær leiðbeinandi, skýr, ávallt vel undirbúin, skemmtileg og umfram allt beitt þegar á þurfti að halda. Námsefnið var sérsniðið að þörfum stofnunarinnar og kennsluaðferðir voru afar fjölbreyttar hvort sem að kennslan fór fram í fjar- eða staðarþjálfun.“
Guðmunda Smáradóttir
Mannauðs- og gæðastjóri hjá Landbúnaðarháskóla Íslands -
,,Stjórnendur Icelandair fóru í gegnum 4 Essential Roles of Leadership og fengu í framhaldi aðgang að öllu FranklinCovey efninu á vefnum (AllAccessPass). Mikil ánægja var með þjálfunina og hentaði hún jafnt reynslumiklum og reynsluminni stjórnendum félagsins og gaf þeim ýmis hagnýt verkfæri. Guðrún Högnadóttir er frábær leiðbeinandi og aðstoðaði okkur mjög vel við að aðlaga efnið að okkar stefnu og áherslum.“
Sveina Berglind Jónsdóttir
Director of people and culture at Icelandair -
„Til að styrkja leiðtogahæfi stjórnendahópsins hjá mér tók ég þá ákvörðun að fara með hópinn í 4 lykilhlutverk leiðtoga. Það var virkilega góð ákvörðun sem skilað sér síðan í áframhaldi vinnu með efnið úr námskeiðinu og jók á leiðtogahæfni hópsins. Bæði kennsla og efnið sem fylgdi með var alveg til fyrirmyndar. Hópurinn í heild sinni var virkilega ánægður með árangurinn og þetta hristi hann vel saman.“
Gunnur Helgadóttir
Framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs Hrafnistuheimilanna -
Hugmyndafræði “7 venja árangursríkra stjórnenda” hefur reynst mér gríðarlega vel á vegferð minni að ná fram stöðugum umbótum og vaxa sem leiðtogi, bæði í einkalífi og vinnu. Ég hef nokkrum sinnum setið námskeið um 7 venjur til árangurs og bókin heldur alltaf sínum sess á náttborðinu þó svo aðrar bækur komi og fari. Á námskeiðinu fer Guðrún Högnadóttir í gegnum efnið af mikilli fagmennsku en ekki sýst einlægni, setur viðfangsefnið í samhengi við raunveruleikan með reynslusögum og virkjar þátttakendur til að miðla sinni reynslu.
Námskeiðið bíður upp á einföld og tímalaus tól til árangurs; ná betri stjórn og forgangsröðun á það sem skiptir sannarlega máli, vera forvirk og grípa til aðgerða. Stuðla að árangursríkum samskiptum við samferðafólk og hefja það upp til árangurs. Síðast en ekki síst, að endurnærast sem einstaklingur og ná jafnvægi milli einkalífs og vinnu til að geta haldið áfram að vaxa og dafna sem leiðtogi.
Sæunn Björk Þorkelsdóttir
forstöðumaður innkaupa og vörustýringar hjá Controlant -
Frá því að ég hóf störf sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar árið 2014 hefur mikið reynt á stjórnendur sveitarfélagsins sem og alla aðra starfsmenn og íbúa. Árið 2019 samþykkti bæjarstjórn samhljóða nýja framtíðarsýn, megináherslur, gildi og aðgerðir undir vinnuheitinu; „Í krafti fjölbreytileikans“ sem ætlað er að verða leiðarljós fyrir stjórnendur og starfsmenn sveitarfélagsins til ársins 2030. Til að stilla saman strengi fengum við Guðrúnu Högnadóttur stjórnendaráðgjafa frá Franklin Covey á Íslandi til að vinna með okkur með það að markmið að skerpa á framtíðarsýninni og styrkja stjórnendateymið enn frekar. Er skemmst frá því að segja að sú vinna tókst frábærlega og stendur enn. Guðrún færði okkur mörg verkfæri í hendur sem nú er unnið að því að innleiða og mun sú vinna standa yfir næstu misserin.
Kjartan Már Kjartansson
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar -
„Námskeiðið var virkilega flott og faglegt þrátt fyrir óvenjulegar aðstæður. Fjarfundabúnaður, undirbúningur og nýting tækninnar var til fyrirmyndar. Guðrún Högna leyddi námskeiðið einstaklega vel og veitti þjálfarateyminu okkar frábær verkfæri til að takast á við starf í framlínustjórnun. “
Þuríður Björg Guðnadóttir
Framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Nova -
Ég hef bæði reynslu af því sjálf að fara í gegnum þjálfun hjá Franklin Covey og eins að kaupa þannig þjálfun inn á vinnustaði sem ég hef starfað á. Það hefur verið samdóma álit mitt og samstarfsfólks míns að þjálfunin hafi skilað miklu fyrir okkur. Bæði fyrir þátttakendur og vinnustaðina. Þátttakendur hafa upplifað aukna ánægju og hvatningu, sem hefur nýst þeim bæði í einkalífi og starfi. Vinnustaðirnir hafa séð aukinn árangur vegna bættrar frammistöðu og ánægju, með skýrari sýn, öflugri forgangsröðun, betri endurgjafar og fleira.
Herdís Pála Pálsdóttir
Framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Deloitte -
„Það eru nokkur atriði sem skipta máli þegar það kemur að velja FranklinCovey. Það er í fyrsta lagi að þetta er alþjóðlega viðurkennt nám og námsefnið er því búið til af miklu fagfólki á sviði stjórnunar. FranklinCovey hafa verið starfandi í áratugi og hafa sannað að efnið er vel uppbyggt og byggt á rannsóknum. Efnið er hægt að klæðskeriðsauma að ákveðnum stjórnendum. Þú getur átt samtal og spurt hvað ert þú að kljást við í dag og spurt ertu búinn að skoða þetta efni? Það er góður gagnagrunnur. Svo skiptir líka máli að hafa gott aðgengi að FranklinCovey á Íslandi, eins og Guðrún Högnadóttir sem keyrir þetta á Íslandi er mikill reynslubolti og að hafa það aðgengi er mjög mikilvægt.“
Hasteinn Bragason
Mannauðsstjóri Íslandsbanka -
„Ég mæli eindregið með því mikla framboði námsefnis fyrir stjórnendur og starfsmenn sem Franklyn Covey hefur uppá að bjóða. Þar er að finna faglegt efni sem sett er fram á aðgengilegan hátt og hef ég góða sögu að segja af reynslu minni bæði við að sitja sjálf námskeið sem og af þeim starfsmönnum sem hafa setið námskeiðin. Guðrún Högnadóttir er frábær leiðbeinandi og kemur efninu frá sér á lifandi og fræðandi hátt, netnámskeiðin eru frábær viðbót og eru vönduð og hnitmiðuð“
Íris Ösp Bergþórsdóttir
Sérfræðingur á mannauðssviði Icelandair -
Teymi FranklinCovey á Íslandi hefur stutt okkur með þjálfun sem tekur mið af gildum fyrirtækisins almennt og þeim sértæku áskorunum sem við stöndum frammi fyrir hverju sinni. Sjö venjur til árangur hafa persónulega verið mér ómetanlegt veganesti bæði í einkalífi og í starfi.
María Ósk Kristmundsdóttir
Verkefnastjóri hjá Alcoa -
Hittir í mark bæði hjá reynslumiklum og reynslulitlum stjórnendum. Gefur stjórnandanum verkfæri sem auðvelt er að grípa til við ólíkar aðstæður. Setur hlutina í samhengi og höfðar til manneskjunnar sjálfrar og hennar eigin ábyrgð á árangri.
Elín Hjálmsdóttir
Framkvæmdastjóri mannauðssviðs Eimskips -
Færir heilu hópana á flug í markmiðasetningu. Ávinningurinn er ótvíræður, ekki aðeins í þvi að ná settu markmiði heldur einnig í liðsvinnu, samheldni, upplýsingaflæði og bara almennri stemningu.
Elín Hjálmsdóttir
Fyrrum framkvæmdastjóri mannauðssviðs Eimskips -
Traust er grundvöllurinn fyrir því að allt gangi, grundvöllurinn að samheldnu árangursríku teymi. Allir sem hafa áhuga á að ná árangri ættu að fara í gegnum þetta efni.
Elín Hjálmsdóttir
Fyrrum framkvæmdastjóri mannauðssviðs Eimskips -
Það getur verið vandasamt að velja efni til að efla bæði reynslumikla og reynslulitla stjórnendur. Ég tók rétta ákvörðun þegar ég valdi Franklin Covey á Íslandi (FC) sem samstarfsaðila Eimskips til að efla stjórnendahópinn. Leiðbeinendur eru reynslumiklir og efnið frá þeim er í senn skiljanlegt í framsetningu, skemmtilegt og með augljósa tengingu við fjölbreytt viðfangsefni stjórnenda. Efni frá FC hefur sannað sig yfir langan tíma sem sterkur grunnur stjórnunar. Það eru mikil verðmæti fólgin í sterkum grunni.
Elín Hjálmsdóttir
Fyrrum framkvæmdastjóri mannauðssviðs Eimskips -
„Í grunninn byggir leiðtogaverkefnið upp skilning og færni til að geta borið ábyrgð á eigin ákvörðunum og þannig mótað líf sitt til hins betra ásamt því að þroska samskiptahæfni barna og kennara. Flestir kennarar Klettaborgar hafa farið á námskeið í venjunum 7 og telja sig hafa haft mikið gagn af hugmyndafræðinni bæði í leik og starfi. Foreldrar hafa lýst ánægju sinni með starfið og fá reglulega kynningu á venjunum í vikulegum fréttaskotum, með vissu er hægt að segja að leiðtogaverkefnið hafi haft mjög jákvæð áhrif á skólasamfélagið í heild.“
Steinunn Baldursdóttir
Skólastjóri á leikskólanum Klettaborg -
„Efni Leiðtogans í mér getur stutt við alla þessa þætti og við gátum tengt það við þá hugmyndafræði sem fyrir var í leikskólanum. Við notum hugmyndafræðina og þar með venjurnar á þann hátt að við reynum að láta það hafa áhrif á vinnuaðferðir, viðmót og það hvernig við byggjum upp „andann í húsinu.“
Kristín Gísladóttir
Skólastjóri á Uglukletti -
„Ef við þróumst þá stöndum við í stað og þá förum við að dragast aftur úr. Ég var með einn af fyrstu hópunum sem keyrði af stað 4DX verkefninu og það var bara stóraukið frumkvæði, nú tökum við bara upp símann og hringjum í viðskiptavini. Við útrýmdum frestun og styttum biðtíma með því að leysa málin bara strax.“
Hrönn Sigurðardóttir
Verkefnastjóri hjá Sjóvá -
„FranklinCovey notar skilvirka aðferðafræði sem fær allan hópinn til að taka virkan þátt við að gera vinnustaðinn sinn betri til framtíðar.“
Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir
Forstjóri Vinnueftirlitisins -
„Nálgun Coveys um grunnþætti árangurs í lífi og starfi er í senn tímalaus og mjög svo tímanleg. Vinnustofa 7 venja til árangurs færði stjórnendateymi Kópavogsbæjar ný viðhorf, færni og aðferðir til að efla okkur enn frekar í að þjóna spennandi verkefnum sveitafélagsins.“
Ármann Kr. Ólafsson
Bæjarstjóri Kópavogs -
„Einföld og hagnýt yfirferð á lykilatriðum til árangurs. Ég hef stuðst við efni bókarinnar í lífi og starfi frá fyrsta degi eftir að hafa lesið hana, gríp oft til hennar fyrir innblástur og mæli með henni í hvívetna við hvern þann sem vill hafa áhrif og skara framúr.“
Salóme Guðmundsdóttir
Framkvæmdastjóri Icelandic Startups -
„Ég setti mér ný markmið eftir lestur bókarinnar. Það er gott að hafa markmið en það sem er enn mikilvægara er að vita hvernig maður ætlar að komast þangað og þá sýn fékk ég eftir mjög gott námskeið í 7 venjum til árangurs. Takk fyrir mig!“
Gunnur Helgadóttir
Framkvæmdastjóri Vistor -
“Bókin 7 venjur til árangurs er ein af þeim bókum sem að liggja reglulega á náttborðinu mínu. Sígildur og áhrifamikill boðskapur bókarinnar hefur hjálpað mér að ná árangri í starfi og ekki síður verið mér mikil hvatning í persónulegu lífi.”
Elísabet Einarsdóttir
Starfsmannastjóri Íslandshótela -
„Rétt eins og Newton færði okkur aukinn skilning á þyngdarlögmálinu þá hefur Covey fært okkur skilning á þeim lögmálum sem liggja að baki velgengni í lífi og starfi. Flóknara er það ekki.“
Kristinn T. Gunnarsson
Ráðgjafi -
„Í gegnum lífið áttu nokkur „AHA-augnablik“ en 7 Venjur til árangurs er eitt stærsta „AHA-augnablik“ sem ég hef átt. Persónulegur vöxtur og skilningur minn á sjálfum mér hefur gefið mér ótrúlegt sjálfstraust og styrk. Ég get ekki beðið eftir að færa samstarfsmönnum mínum hjá Securitas þessa gjöf sem Venjurnar 7 eru.“
Hlíf Böðvarsdóttir
Mannauðsstjóri Securitas -
„Bókin um venjurnar 7 er ein mest selda viðskiptabók allra tíma og ein áhrifamesta bók sem notuð hefur verið í leiðtogaþjálfun um allan heim. Hún fjallar um miklu meira en bara viðskipti og þjálfun leiðtoga. Hún fjallar um bestun í persónulegri hegðun til að hámarka árangur í hverju því sem menn takast á hendur, hvort heldur er í vinnu eða einkalífi. Það geta allir látið sig dreyma en bókin hjálpar fólki til að gera drauma að veruleika með því að setja sér metnaðarfull markmið og ná þeim með skipulögðum hætti. Þessi bók ætti að vera skyldulesning í öllum framhaldsskólum á Íslandi.“
Hreggviður Jónsson
Aðaleigandi og stjórnarformaður Veritas Capital -
„Að öðrum ólöstuðum er Covey framúrskarandi þegar kemur að skrifum um raunverulegan og langvarandi árangur í lífi og starfi. Tímalaus viska hans og lífsreglur eru lykill að farsælu ferðalagi, hversu farsælt ferðalagið verður er þó undir lesandanum einum komið. Þá reynir fyrst og síðast á einbeitan vilja til að axla ábyrgð á eigin velferð og samferðamanna.“
Arnar Hreinsson
Útibússtjóri Landsbankanum -
„7 venjur til árangurs er frábær bók sem hjálpar okkur ekki bara að ná persónulegum árangri heldur hjálpar hún okkur til að hafa jákvæð áhrif á alla í kringum okkur. Hún inniheldur afar verðmæta leiðsögn um hvernig við getum veitt betri forystu í lífi okkar. Þessi einstaka bók sáir fræjum sem hætta aldrei að vaxa!“
Sigurður Ragnarsson
Forseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst -
„Ein af þeim bókum sem hittir í mark og nær um leið tengingu við lesandann með sýnilegum og áþreifanlegum hætti. Venjurnar sjö hafa haft með mjög árangursríkum hætti áhrif á mig sem einstakling sem og leiðtogahæfni mína. 7 Venjur er leiðarvísir í þá átt að laða fram það allra besta í hverjum einstaklingi sem er mikil verðmæti fyrir samfélagið jafnt sem skipulagsheildina.“
Sigurður B. Pálsson
Forstjóri Byko -
„Lestur bókarinnar og þjálfun starfsmanna okkar er verulega til gagns. Í raun snýst þetta um heilbrigða skynsemi og öguð vinnubrögð, forgangsröðun og skipulag. Og þar sem „common sense is not so common“ veitir þetta mjög gagnlegt aðhald og áminningu um hvernig best er að haga verkum. Það er í raun ekki hægt að gleyma leiðbeiningunum, bara að rifja upp að til eru 7 venjur og þá fylgir allt hitt með.“
Ásgeir Margeirsson
Forstjóri HS Orku -
„Sýn Coveys á árangursríkar aðferðir fyrir einstaklinga og liðsheildir er í senn áhugaverð og uppbyggjandi. 7 Venjur til árangurs fjallar um hagnýtar leiðir til að vaxa og dafna í nútíma þekkingarsamfélagi. Lesning sem nýtist öllum til aukins árangurs í lífi og starfi.“
Dr. Svafa Grönfeldt
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Alvogen -
„Tímalaus sýn Coveys á árangur einstaklinga í einkalífi og á vinnustað á svo sannarlega við í dag. Bók hans varpar ljósi á klassíska nálgun til að bæta verulega árangur í lífi og starfi, og hann kryddar framsetninguna með skemmtilegum dæmisögum, áhrifaríkum og hagnýtum aðferðum.“
Gylfi Sigfússon
Forstjóri Eimskipafélags Íslands -
„Covey kom auga á þær forsendur frammistöðu sem hafa varðað vöxt okkar – jákvæðni, áreiðanleika, hagkvæmni og framsækni. Vinnustofa stjórnenda í 7 venjum ræktaði enn frekar jarðveg árangurs hjá Ölgerðinni.“
Andri Þór Guðmundsson
Forstjóri Ölgerðarinnar -
„Það eru stórar lexíur í þessari bók. Öflug verkfæri sem geta flutt fjöll úr stað. Í mínu tilfelli kenndi þessi bók mér að spyrja: Hvað er mér raunverulega mikilvægt? Og hvað er bara áríðandi?“
Benedikt Erlingsson
Leikstjóri og kvikmyndaframleiðandi -
„Ég las þessa 7 Venjur til árangurs á fyrstu árunum í atvinnumennskunni í handbolta og var allan minn feril að reyna að temja mér innihald hennar.“
Ólafur Stefánsson
Handboltamaður
Áskorunin
Virkjaðu teymi þitt til að vinna hjarta allra viðskiptavina.
Hversu tryggir eru þínir viðskiptavinir?
Vertu fyrst viss um að vinna hjörtu þeirra sem þjóna viðskiptavinum þínum. Meira en 70% af upplifun viðskiptavina stýrist af viðmóti og framkomu framlínustarfsmanna. Ef þeir eru ákafir talsmenn vöru ykkar og þjónustu, eru viðskiptavinir þínir líklegri til að vera líka sannir talsmenn ykkar. Starfsmenn þurfa að upplifa að þeir séu meðlimir sigurliðs sem þjónar mikilvægum tilgangi. Það kallar á öfluga forystu að hanna, hvetja og leiða slík teymi.
"Treat your employees exactly as you want them to treat your best customers."
-STEPHEN COVEY
Lausnin
Fangaðu sannreynd lögmál þjónustustjórnunar.
Tryggð starfsmanna kemur á undan tryggð viðskiptavina.
Sönn ánægja viðskiptavina ykkar byggir á samskiptum við framlínustarfsmenn ykkar. Einsdags vinnustofa FranklinCovey um þjónustustjórnun – Tryggðu tryggð viðskiptavina (Leading Customer Loyalty) er ætluð framlínustjórnendum sem læra ný viðhorf og færni til að auka helgun starfsmanna og viðskiptavina.
Stjórnendur öðlast skýran skilning á hvernig má vera fyrirmynd góðrar þjónustu með því að leiða sín teymi með skilningi, ábyrgð og gjöful samskipti að leiðarljósi.
Niðurstaðan
Fangaðu sannreynd lögmál árangursríkrar þjónustustjórnunar.
Áhugasamir starfsmenn hvetja viðskiptavini með sönnum hætti.
ÞÁTTTAKENDUR LÆRA AÐ:
-
Að tengjast með mannlegum og sönnum hætti
-
Að hlusta og miðla með skilningsríkum hætti
-
Að uppgötva hvaða verk þarf í raun að vinna fyrir starfsmenn og viðskiptavini
-
Að fylgja málum eftir til að leysa og fyrirbyggja mál
-
Að gefa áhrifaríka endurgjöf sem byggir upp fólk
-
Að hvetja teymið til að deila sinni bestu hugsun og hugmyndum
-
Að leiða árangursríka teymisfundi um þjónustu.